Veðrið

Ég verð aðeins að trufla framhaldssöguna með fréttum af veðri. Ég hef áður lýst því hversu heppin við höfum verið með veður hérna. Það höfðu verið miklar rigningar og nánast stöðug þoka vikurnar áður en við komum, en nú er bara sólskin og blíða nema þegar skyldurigningin skellur á.

Nema hvað á miðvikudaginn, sama dag og við fórum í einkaklúbb, flatmöguðum við sundlaugina (eini möguleikinn til að komast í sundlaug í bænum er í svona einkaklúbbum) og brunnum í háfjallasólinni, skall á allsvakaleg rigning síðdegis sem varði fram á kvöld. Hér í Alajuela drukknaði einn maður þegar lækur flóði vel yfir bakka sína, og það hérna rétt hjá, og í Cartago, sem er í svona 30 km fjarlægð, gekk yfir hvirfilbylur sem tók þökin af 35 húsum. Enginn slasaðist þó. Daginn eftir gekk hvirfilbylur yfir hverfi í San José, sem er í um 15 km fjarlægð héðan, og eyðilagði 200 hús. Við höfðum verið að spóka okkur í öðru hverfi fyrr um daginn og þangað til fór að rigna. Shocking

Ég er nokkuð viss um að það komu engar fréttir af þessu heima...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

270 dagar til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband