Fólkið í forgang?

Á sama tíma og frú borgarstjóri segir að "nú þurfi að stíga á bremsuna, nokkuð laust, til þess að ekki þurfi að kippa í handbremsuna síðar" og  talar um "teikn um þrengingar í rekstri Reykjavíkurborgar", lýsir hún því yfir að tjörnin í Reykjavík verði að sjálfsögðu hreinsuð, jafnvel þótt það kosti einhverja peninga.

Vissulega er nauðsynlegt að hreinsa tjörnina af saurmengun. En ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann heyrt frá borgarstjórn að "að sjálfsögðu verði að finna húsnæði handa heimilislausum" eða " að sjálfsögðu verði að redda fleiri félagslegum íbúðum í snatri, jafnvel þótt það kosti einhverja peninga" eða "að sjálfsögðu styrkjum við líknarsamtök sem gefa fátæku fólki mat".

Þegar eitthvað þarf að gera sem kemur fátæku fólki við þarf borgarstjórn að velta fyrir sér hverri krónu og virðist eiginlega sko ekki hafa efni á því. Þá þarf alltaf að stíga á bremsuna. En þegar þarf að hreinsa tjörn eða kaupa hús, ÞÁ eru allt í einu til peningar!

Eru til peningar eða eru ekki til peningar???

Hanna Birna og co. þurfa aðeins að endurhugsa forgangsröðina hjá sér núna.


mbl.is Fjármálin í forgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

249 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 23401

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband