Þriðjudagur, 17. júlí 2007
Vinir
Eftir aðeins fjóra daga í Barselóna hef ég eignast vini sem vilja allt fyrir mig gera. Þetta eru auðvitað vinir Bjartar, vinkonu minnar til 25 ára (úff, er ég virkilega svo gömul að ég get hafa átt vini í 25 ár?
) sem býr hér og ég er gestur hjá. Það segir sig sjálft, vinir hennar hljóta að vera gott fólk, hvernig er annað hægt? Þeir sem þekkja Björtu vita hvað ég á við.
En semsagt, mamma er á leiðinni hingað og við ætlum að leigja íbúð í 100 manna fjallaþorpi ekki langt frá Barselóna. Roser, eða móðir hennar, ég man ekki hvor, á þessa íbúð sem er í húsi frá byrjun 18. aldar. Þar ætlum við að vera í nokkrar nætur. Í þorpinu er ein búð og einn bar / veitingastaður, og fullt af börnum, skilst mér. Það sem verra er er að það fer engin rúta þangað eða þaðan nema um helgar. Hægt er að taka lest til næsta bæjar, Terrassa, en síðan þarf maður að redda sér þá 25 km sem eftir eru. En hvað haldið þið? Ég sagði áðan að þetta væru vinir sem vildu allt fyrir mig gera. Jú, Roser ætlar að keyra okkur þangað og Sergio ætlar að sækja okkur!
Kæru vinir á Íslandi: Takið ykkur þessa hegðun til fyrirmyndar .
Svo er hér mynd af okkur Erik á ströndinni í Barselóna á sunnudaginn var.
Um bloggið
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Spurt er
Tónlistarspilari
267 dagar til jóla
Tenglar
Spænska
- Frú Mínerva Málaskóli
Myndir frá Kosta Ríka
Hér eru myndaalbúm með myndum frá Kosta Ríka í júní 2007.
Lindy Hop
Þetta er dansINN!
- Heimasíðan okkar
- Hellzapoppin So you think you can dance!!
- Showdown 2006 Ég get þetta sko alveg...
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
andreaolafs
-
hugdettan
-
astar
-
bjorkv
-
bleikaeldingin
-
brylli
-
fitubolla
-
neytendatalsmadur
-
gurrihar
-
hallarut
-
handtoskuserian
-
hlynurh
-
jenfo
-
jensgud
-
johannbj
-
jonbjarnason
-
hugsadu
-
lauola
-
larahanna
-
mammzla
-
mariataria
-
manisvans
-
svarthamar
-
runavala
-
soley
-
smjattpatti
-
jam
-
svenni
-
toshiki
-
truno
-
vefritid
-
hallormur
-
thorgnyr
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vildi svo gjarnan vera þarna. Njóttu lífsins í botn kæra bloggvinkona.
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 20:21
Já, nú höfum við skipt um hlutverk, ég og mamma ykkar, ég heima, hún með ykkur. Ég vildi svo sannarlega vera kominn til þessa hundraðmanna þorps. Ég var að skrifa þér tölvupóst vegna útvarpsþáttanna um Kosta Ríka og hélt að þú kæmist kannski á netið en það er víst vonlítið. Þú færð þetta því þegar þú kemur aftur til Barselónu.
Bjargarpabbi/Eriksafi
Þorgrímur Gestsson (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.