Gullmoli dagsins

Syni mínum finnst salt alveg skelfilega gott. Ég skil hann samt vel, ég var svona sjálf fram eftir öllum aldri. Mér finnst ennþá salt gott en ég er samt hætt að sleikja það úr lófanum á mér. Sonur minn gerir einmitt það. Honum finnst líka rosalega gott að hrúga salti á matinn sinn. Í dag gekk hann samt aðeins of langt, en það var samt alveg óvart.

Eina ráðið til að fá hann til að borða kartöflur er að hann fái að stappa þær og setja smjör og salt. Hann er, þrátt fyrir þessa fíkn sína, hógvær drengur og snýr alltaf lokinu á saltstauknum þannig að ekki komi of mikið út í einu. Ég vil hins vegar hafa það öðruvísi stillt, svo þegar ég notaði saltið breytti ég því. Nokkru seinna fékk hann sér meiri kartöflur og þar af leiðandi meira salt. En það sem hann vissi ekki var að ég hafði breytt stillingunni á saltstauknum og setti hann á hvolf yfir stappaðar kartöflurnar. Auðvitað hrúgaðist salt á þær. En sá litli borðaði allt saman þegjandi og hljóðalaust. Þegar hann var búinn leit hann hóstandi á mig og sagði:

"Mamma, ég hef lært mína lexíu".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krúttkast.  Þvílík dúlla

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

250 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 23400

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband