Við þökkum fyrir það...

...en hver hefur heyrt um sex ára gamla stúlku? Í hverjum einasta fjölmiðli er talað um stúlku.

Þetta er getraun: Hvað er athugavert við að tala um sex ára gamlar stúlkur??


mbl.is Litla stúlkan fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Er hún ekki stelpa eða telpa fram að vissum aldri?

Laufey Ólafsdóttir, 7.5.2008 kl. 13:24

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Bingó, Laufey!  Það var alltaf talað um drengi og telpur annars vegar, og pilta og stúlkur hins vegar. Núna eru allir "drengir og stúlkur". Á leikskólunum heita deildirnar meira að segja "drengjadeild" og "stúlknadeild". Ég meina, hvað eiga stelpur að vera lengi í leikskóla??

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 7.5.2008 kl. 22:47

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Fram að átján ára aldri Björg og þá hleypum við þeim í klaustur!

Er ekki umhugsunarefni og kannski efni í rannsóknir útaf fyrir sig að drengirnir mega vera drengir frá vöggu til fullorðinsaldurs á meðan telpurnar þurfa að verða stúlkur strax....

Það er eðlilegt að málnotkun breytist en þetta væri fróðlegt að vita

Laufey Ólafsdóttir, 8.5.2008 kl. 00:00

4 identicon

Það er gott að fólk skuli ræða um málfar og máltilfinningu. Ég segi að tungunni sé ekki mjög hætt á meðan! En skv. minni orðabók, sem er raunar frá 1963, er telpa haft um stúlkubarn en stúlka um unga konu. Ekki veit ég hvar skilin á milli eru, við hvaða aldur á ég við! Hins vegar eru orðin piltur og strákur samheiti núorðið - en áður var strákur óvirðulegra, sbr. strákslegur osfrv. Sama er eiginlega að segja um stelpu, það var áður fyrr heldur óvirðulegt orð, sbr. stelpugála, enda þýddi sögnin að stelpa "falla um koll" í fornu máli.

Þetta var bara svona til fróiðleiks og gamans frá pabba þessa bloggara!

Þorgrímur Gestsson (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

243 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband