Sumarbúðir

Ég fór aldrei í sumarbúðir sem krakki. Líklega hef ég aldrei beðið þess bætur. En núna gefst mér tækifæri á að bæta mér upp það sem ég fór á mis við í æsku. Loksins fæ ég að fara í sumarbúðir. Þær eru þó hvorki í Kaldárseli né Vaglaskógi (eða hvar það nú var sem þær voru staðsettar í gamla daga), heldur í smákrummaskuði í Svíþjóð sem enginn þekkir, ekki einu sinni Svíar: Herräng. Athugið að til að nafnið skiljist í Stokkhólmi þarf að bera það fram með sænskum hreim, sem kemur sjálfkrafa með því að leggja áherslu á bæði atkvæðin.

P1010058

Eins og sést á þessari mynd eru þetta engar venjulegar sumarbúðir. Þetta eru DANSbúðir, þar sem aðallega er dansað Lindy Hop, en einnig nokkrir aðrir óæðri dansar. Og sjálfur Frankie Manning verður á staðnum, en hann er einna elstur í hettunni á þessu sviði. Hann er fæddur árið 1914 og er 93 ára á þessu myndbandi.

 

Að lokum eru hér skilaboð til nágranna minna: Ekki týna ykkur í dagdraumum, húsið mitt verður EKKI autt á meðan ég er í burtu! Angry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef heyrt talað um þetta Krummaskuð.  Jájá, tók svo vel eftir þegar ég bjó í Sverige.

Rosalega er þetta flottur karl og dansinn líka.

Góða ferð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 01:15

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Takk, Jenný  Það er víst eitthvað misjafnt hvort fólk viti hvaða staður þetta er eða ekki. Sumir þekkja hann bara af þessum dansbúðum.

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 17.7.2008 kl. 23:58

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þegar ég var yngri hefði ég miklu frekar viljað fara í dansbúðir en sumarbúðir. Er enn sömu skoðunar. 93 ára!!! Ég þekki marga 25 ára sem líta út fyrir að vera eldri. Góða ferð og skemmtun!

Laufey Ólafsdóttir, 18.7.2008 kl. 03:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

271 dagur til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband