3 dagar í ferð til Kosta Ríka

Dagarnir líða alltof hratt núna, ég á eftir að gera svo margt áður en við förum. Eitt af því er að taka til í húsinu W00t. Einu sinni tók ég svefnherbergið í gegn og það tók þrjá daga. Svo breytti ég því í borðstofu... Einn stærsti gallinn við að vera einstæð (eða einhleyp) móðir er tímaskorturinn. Það er bara ekki tími til að taka til og þrífa á veturna. Ég rétt kemst yfir þetta lífsnauðsynlegasta: að vaska upp, þvo þvott og þrífa heimilismenn. Annað verður að bíða til sumars. Og ég er bara með eitt barn!

Það er mikill spenningur í gangi á heimilinu. Sá litli gerir ekkert sem hann er beðinn um og má ekki einu sinni vera að því að fara á klósettið. Það eykur reyndar talsvert álagið á þvottvélina. Hann hlakkar svo mikið til að hitta pabba sinn sem hann hefur ekki hitt síðan í ágúst. Ég nota tækifærið og reyni að siða hann til með því að segja að í Kosta Ríka sé til siðs að borða með hnífapörum og alveg bannað að prumpa við matarborðið. Það virkar ekkert sérlega vel.

Meira á morgun...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Undarlegir siðir í útlöndum!!! dísus!

Tímaskortur! haha! Understatement of the year! Kannast við ofangreind vandamál. Held stundum að börnum vaxi sigg í eyrum gegn rödd móður. Eitthvað hlýtur það að vera!

Laufey Ólafsdóttir, 28.5.2007 kl. 23:48

2 identicon

Góða ferð og skemmtið ykkur nú rosalega vel í útlandinu.

Ég er búin að vera 'einstæð' 2ja barna móðir síðan í byrjun apríl með pabbahelgar aðra hverja viku, þ.e.a.s. pabbinn kemur heim aðra hverja helgi og það er sko ekkert grín að vera ein með ormana. Kl. 21.30, þegar allt er búið og allir sofnaðir er maður sjálfur yfirleitt alveg búinn og er ekki að fara að hafa samband við fólk. Beggi er s.s. uppi í Fljótsdal við eftirlit með niðursetningu einhverra véla þar. Já, niðursetningu þar sem í vélageiranum eru vélar ekki settar upp heldur niður.  

Fer í sumarfrí 16. júlí, þá verð ég við... Heyrumst!

Ásdís (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 10:39

3 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Heyrðu, Ásdís. Ég hringi í þig á morgun!! Gaman að heyra frá þér!

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 29.5.2007 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

235 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 23447

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband