Sinfónía nr. 2

Anton Mikailovich spýtti, sagði „oj“, spýtti aftur, sagði „oj“ aftur, spýtti aftur, sagði „oj“ aftur og fór. Til fjandans með hann. Í staðinn ætla ég segja frá Ilya Pavlovich. 

Ilya Pavlovich fæddist 1893 í Konstantínópel. Þegar hann var enn strákur fluttu þau til Sankti Pétursborgar og þar útskrifaðist hann frá Þýska skólanum við Kirchnavagötu. Síðan vann hann í einhverri búð; síðan gerði hann eitthvað annað; og þegar byltingin hófst flutti hann úr landi. Jæja, til fjandans með hann. Í staðinn ætla ég að segja frá Önnu Ignatievnu. 

En það er ekki sérlega auðvelt að segja frá Önnu Ignatievnu. Í fyrsta lagi veit ég eiginlega ekkert um hana, og í öðru lagi var ég að detta af stólnum mínum og er búinn að gleyma hvað ég ætlaði að segja. Svo ég ætla í staðinn að segja frá sjálfum mér. 

Ég er hávaxinn, sæmilega gáfaður; ég klæði mig skynsamlega og smekklega; ég drekk ekki, ég veðja ekki á hesta, en ég er nokkuð upp á kvenhöndina. Og konum líkar bara vel við mig. Þeim finnst gaman að fara út með mér. Serafima Izmaylovna hefur boðið mér heim nokkrum sinnum og Zinaida Yakovlevna sagði líka að hún væri alltaf ánægð að sjá mig. En ég flæktist í undarlegt atvik sem snerti Marinu Petrovnu, sem mig langar að segja frá. Ósköp venjulegur atburður en nokkuð skemmtilegur. Marina Petrovna missti allt hárið vegna mín – varð sköllótt eins og barnsrass. Það gerðist svona: Einu sinni fór ég að heimsækja Marinu Petrovnu og bang! hún missti allt hárið. Þannig var nú það.

Daniil Kharms (1905-1945)

http://www.sevaj.dk/kharms/stories/symphon2.htm

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Skondin lesning á sunnudagsmorgni!

Where did I put my pipe?

Pujortautiga sumut ilivara?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 27.1.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Daniil Kharms er héðan í frá uppáhaldssmásagnahöfundurinn minn . Hemingway hvað??

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 28.1.2008 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

236 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 23445

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband