Þriðjudagur, 9. október 2007
Rússíbani
Mér finnst ég vera í rússíbana, mér rétt tekst að gera hlutina áður en þeir þjóta framhjá á ofurhraða. Stundum gleymi ég samt einu og einu atriði og þarf þá að redda því einhvern veginn fyrir horn. Svona er kennarastarfið! Önn eftir önn er þetta svona og ég hef engan tíma til að lifa. Hversu lengi getur maður haldið svona áfram?
Ég segi það ekki að kannski er þessi önn aðeins verri en margar aðrar þar sem ég hef verið mjög dugleg að finna mér eitthvað að gera. Hér eru nokkur dæmi:
- Varaformennska í Félagi einstæðra foreldra.
- Ju jitsu tvisvar í viku.
- Lindy hop alltaf þegar ég hef tíma (!!).
- Fiðlutímar hjá Erik og æfa sig inn á milli.
- Æfa mig á fiðluna (ég þarf líka að læra...)
- Heimilisstörf.
- Ala upp barn.
- Helluleggja garðinn.
- Setja upp panil í borðstofunni.
- Læra ítölsku í fjarnámi.
Þetta er ekki í röð eftir mikilvægi. En ég held að þrátt fyrir að það sé mikið að gera utan vinnu þá sé nauðsynlegt fyrir aktíva manneskju eins og mig að hafa eitthvað skemmtilegt að gera. Og svo eyði ég tímanum í að blogga!!
Um bloggið
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Spurt er
Tónlistarspilari
32 dagar til jóla
Tenglar
Spænska
- Frú Mínerva Málaskóli
Myndir frá Kosta Ríka
Hér eru myndaalbúm með myndum frá Kosta Ríka í júní 2007.
Lindy Hop
Þetta er dansINN!
- Heimasíðan okkar
- Hellzapoppin So you think you can dance!!
- Showdown 2006 Ég get þetta sko alveg...
Myndaalbúm
Bloggvinir
- andreaolafs
- hugdettan
- astar
- bjorkv
- bleikaeldingin
- brylli
- fitubolla
- neytendatalsmadur
- gurrihar
- hallarut
- handtoskuserian
- hlynurh
- jenfo
- jensgud
- johannbj
- jonbjarnason
- hugsadu
- lauola
- larahanna
- mammzla
- mariataria
- manisvans
- svarthamar
- runavala
- soley
- smjattpatti
- jam
- svenni
- toshiki
- truno
- vefritid
- hallormur
- thorgnyr
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hef alltaf sagt að stóra kosningamálið ætti að vera styttri vinnuvika vs. fleiri tímar í sólarhringinn. Annað hvort verður að gerast, það er á hreinu.
Laufey Ólafsdóttir, 10.10.2007 kl. 08:08
Gott væri að fá líka aukadag í vikuna. Hann væri hægt að nýta sem hvíldardag.
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 10.10.2007 kl. 10:04
Við myndum örugglega nota hann í vinnu
Laufey Ólafsdóttir, 11.10.2007 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.