Gamla Reykjavík

Núna skil ég hvers vegna Reykjavík er að breytast í steypuklump og glerhýsi. Fleiri en mig grunaði virðast á þeirri skoðun að eyðileggja beri Reykjavík gjörsamlega, rífa niður gömlu timburhúsin, sálina. Það virðist ekkert mega minna á gamla tíma. Við eigum nóg af nýtískulegum húsum í Reykjavík. Sum eru flott, önnur afar ljót. Þau passa bara alls ekki í miðbænum. Miðbærinn er venjulega elsti hluti hverrar borgar og því eðlilega forn á að líta. Þannig á það líka að vera. Alls staðar erlendis er gamla miðbænum haldið við í sem upprunalegastri mynd. Í Póllandi fengu menn tækifæri til þess að endurbyggja gamla miðbæ Varsjár frá grunni eftir seinna stríð. Þeir endurbyggðu hann eins og hann var á 17. eða 18. öld. Bara með öllum nútímaþægindum. Hann er núna mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, enda sérlega fallegur á að líta. Hvað getum við gert að því þó að þetta séu eldfim timburhús? Kannski væri ráð að sleppa því að vera með skemmtistaði í þeim.. og halógenljós sem kviknar í...

Nú þegar er búið að eyðileggja miðbæinn okkar að hluta með morgunblaðshöllum og ráðhúsum. Kaupmenn vilja rífa meira og minna allan Laugaveginn og byggja eitthvað nýtískulegt. Ég get sagt ykkur það að ég gekk einu sinni niður allan Laugaveginn og skoðaði hvaða hús stóðu auð. Það voru fleiri ný og nýleg hús en gömul. Þar fór gróðrahugsjónin fyrir lítið!

Ég bý í gömlu timburhúsi í miðbænum. Ég vil fá að halda því, takk!


mbl.is Samvinnu leitað við eigendur um að götumynd verði endurbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er alveg sammála þér.. ég er búin að velta þessu svolítið fyrir mér. Það virðst vera rosalega margir sem vilja allt þetta gamla og byggja nýtt..en hvað með þegar þau hús eru orðin gömul? Á þá að rífa þau niður líka og byggja ný?

Helga Dís (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 21:21

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Góður punktur. Ef aldrei má minna fólk á gamla tíma, hvenær er þá kominn tími til að rífa niður það sem var byggt síðustu 10 árin?

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 22.4.2007 kl. 23:02

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Sammála síðasta síðuhöfundi.  Þessi gömlu hús eru sál Reykjavíkur.  

Björn Heiðdal, 23.4.2007 kl. 01:08

4 Smámynd: Björn Heiðdal

Sammála síðasta síðuhöfundi.  Þessi gömlu hús eru sál Reykjavíkur.  

Björn Heiðdal, 23.4.2007 kl. 01:09

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Burtu með ráðhúsið... mestu sjónmengun miðbæjarins. Fínasti arkítektúr en á kolvitlausum stað. Beint á gamla skautasvæðinu okkar

Laufey Ólafsdóttir, 23.4.2007 kl. 09:15

6 Smámynd: Rúna Vala

Ég bý í gömlu húsi í miðbænum líka, er reyndar að selja einhverjum sem vill endubyggja það, enda ónýtt. það verður að halda götumyndinni í sem upprunalegasta horfi en búið er að leyfa stækkun um 60% aftur í garð. Ég horfi stundum á gömlu, niðurníddu húsin í Þingholtunum og það er svo sorglegt til þess að hugsa að þeir sem búa í þeim hafa ekkert endilega efni á að gera þau upp, þannig að að endar með því að þau eru keypt og rifin og eitthvað gímald kemur í staðin. Þetta er raunveruleikinn, krakkar mínir :(

Rúna Vala, 24.4.2007 kl. 14:25

7 Smámynd: Rúna Vala

Rúna Vala, 24.4.2007 kl. 14:25

8 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Hvernig væri að borgin setti meiri peningar í að styrkja húseigendur til að gera upp hús sín? Nú er hægt að fá einhverja litla styrki sem duga fyrir broti af kostnaðinum en það þarf að hafa þá hærri ef þeir eiga að höfða til þeirra efnaminni.

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 24.4.2007 kl. 23:28

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Elsku Björg. Vertu ekki svona einföld Hinir efnaminni eiga ekkert með að halda í hús á besta stað í bænum heldur geta þeir bara keypt gamlar féló- og verkóíbúðir í Breiðhoti og látið fínu og hæfu fólki eftir góðu lóðirnar í miðbænum. Það hefur aldrei þótt góð leið að styðja litla manninn í þessu ágæta þjóðfélagi okkar. Þess vegna er allt svona frábært eins og það er... eða svo er mér sagt

... með öðrum orðum... mig langar líka í hús í Þingholtunum .

Laufey Ólafsdóttir, 24.4.2007 kl. 23:41

10 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Æ já, hvernig læt ég . Auðvitað á bara ríka fólkið að geta búið í miðbænum! Það segir sig sjálft. Svo það geti látið rífa niður þessa gömlu hjalla sem eru að grotna niður (eða gætu farið að gera það eftir nokkur ár) og byggja í staðinn steinsteypuhallir sem líta út eins og gámar.

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 25.4.2007 kl. 14:06

11 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Ég á við "og byggt í staðinn steinsteypuhallir sem líta út eins og gámar".

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 25.4.2007 kl. 14:08

12 Smámynd: Eva Lind

þetta er galli með okkur isledingan við vilum alldaf vera flodust og ver með bestu nínguna .....og í þeim ugleðingum er við  ad skemma okkar gömmlu mind.......                                                                                ég fatta ekki þetta hugar far

kv eva

Eva Lind , 26.4.2007 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

236 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 23437

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband