Jafnrétti hvað??

Um daginn lenti ég í samræðum við einn nemanda minn, sem reyndar er frænka mín líka, sem kannski skýrir hennar djúpu hugsun þrátt fyrir ungan aldur Wink. Hún sagði mér ýmislegt sem ég vissi ekki og varð þess valdandi að ég skildi eitt og annað. Eitt af því sem hún sagði mér var að margar unglingsstelpur spila sig heimskari en þær eru til að ganga í augun á strákunum. Og það virkar! Svo það segir okkur álíka mikið um strákana eins og stelpurnar, ekki satt? Hún sagðist einmitt eiga eina svona vinkonu, sem segir alltaf: "Ha? Hvað er það?" jafnvel þótt hún viti fullvel um hvað er verið að tala. Er þetta virkilega sexí núna? Að vera heimskur? Í eina tíð þótti sexí að vera gáfaður (og fallegur líka, auðvitað), er það liðin tíð hjá unga fólkinu?

Ég veit ekki mikið um "krúttkynslóðina", er þetta hún? Mér virðist jafnrétti kynjanna vera á miklu undanhaldi hjá unga fólkinu núna. Ég hef heyrt sögur um að stelpurnar vilji helst giftast ríkum mönnum og verða heimavinnandi húsmæður W00t. Ég er víst ekki ein um þessa skoðun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Hvað meinaru með "unga fólkið"??? Ég er ljóngáfuð... enda einhleyp.

...hmmm, er þetta dæmi um að breyta um stíl?

Laufey Ólafsdóttir, 15.9.2007 kl. 17:16

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Ok, þá meina ég yngra en ég, svona 10-20 árum yngra... Ekki það að við séum ekki ungar, við erum einmitt á besta unga aldrinum

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 15.9.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Höfundur

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Spurt er

Hvernig húsi viltu helst búa í?

Tónlistarspilari

Facto Delafé Y Las Flores Azules - Enero En La Playa

234 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 23449

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband